Sinopsis
Podcast by Óli Jóns
Episodios
-
85 Jón Ingi Gunnarsson
30/04/2020 Duración: 22minJón Ingi er verslunarstjóri hjá Iceland Engihjalla. Hann segir okkur frá áskorunum í sýnu starfi, kostina og gallana. Jón Ingi hefur starfað í 17 ár í matvöruverslunum og hefur því mikla reynslu á þessu sviði. Jón Ingi segir okkur líka frá því hvernig þau hafa þurft að bregðast við vegna Covid 19 hjá Iceland, hvernig starfsfólk og viðskiptavinir hafa brugðist við. Einnig segir Jón Ingi okkur frá því hvernig verslunarmynstur hefur breyst hjá fólki á þessum tímum.
-
84. Ólöf Rún Tryggvadóttir
22/04/2020 Duración: 37minÓlöf Rún Tryggvadóttir stofnaði Eylíf heilsuvörumerkið 2018, eftir að hafa selt fyrirtækið sitt, IceCare árið 2017. Hún segir frá sínum ferli fram að stofnun fyrirtækisins, hvers vegna hún seldi það og hvaða verkefni það eru sem hún er að fást við í dag með Eylíf og framtíðarplönin.
-
83. Fjóla Guðrún Friðriksdóttir
15/04/2020 Duración: 48minFjóla G. Friðriksdóttir eigandi Spa of Iceland er gestur Óla í þætti 83. Fjóla rekur fyrir okkur sýna sögu í viðskiptalífinu á Íslandi. Fjóla rak ásamt manni sínum heildsölu sem seldi leikfangabíla til að byrja mér en þróaðist svo síðar út í snyrtivörur ofl. Fjóla stofnaði með annars apótek og rak um tíma brugghús og veitingastað í í Grandagarði 8.
-
82. þáttur Paula Gould
08/04/2020 Duración: 50minÍ þessum þætti spjöllum við Paula Gould í annað sinn. Hún kom til mín í þátt 30 í júlí 2017. Við ræðum hvað á daga Paula hefur drifið síðan og þá helst nýja fyrirtækið hennar Float and Gather Á floatandgather.com segir: Founded by Paula Gould in the fall of 2019, Float and gather helps internationally-minded companies, entrepreneurs and artists strategize and execute on their go-to-market and growth initiatives between North America and Europe. Float and gather works with brilliant companies and projects across Europe and North America. Float and Gather’s founder Paula Gould is a go-to-market and growth strategy consultant, speaker and MarComm executive. She previously served as Head of Brand Communications at Men&Mice (acqu. by Stefnir SÍA III), CMO at Greenqloud (acqu. by NetApp), Board Member at CLARA (acqu. by Jive Software) and Principal at Frumtak Ventures, where she led international growth, brand and marketing initiatives internationally. She has extensive experience working with growth and startup
-
81. Àsgeir Höskuldsson
26/03/2020 Duración: 37minÁsgeir sem er markaðsstjóri Dohop kom í viðtal í byrjun mars. Hann fer yfir starfsferil sinn í þessu viðtali sem er mjög áhugaverður og skemmtilegur. Ásgeir hefur til dæmis starfað fyrir Niktia, Artic Adventures, West Tours og Cintamani. Við fáum að vita allt um starfsemi Dohop sem er tölvuvert meiri en margir vita.
-
80. Sturla Þórhallsson Splitti
18/03/2020 Duración: 36minSturla stofnaði fyrirtæki Splitti með félaga sínum Hannesi Baldurssyni í upphafi árs 2019. Í þessu viðtali segir Sturla okkur frá Splitti, hversvegna það varð til og hvað þjónustu þeir bjóða uppá.
-
79. Jón Gunnar Geirdal
04/03/2020 Duración: 59minGestur Óla Jóns í þætti 79 er athafnamaðurinn, námsmaðurinn, fjölmiðlamaðurinn og fjölskyldumaðurinn Jón Gunnar Geirdal. Jón fer yfir í þessu viðtali hluta af þeim fjölmörgu verkefnum sem hann hefur komið að í gegnum tíðina. Í fjölbrautarskólanum í Garðabæ hófst útvarpsferill Jóns þegar hann fór á dagskrárgerðarnámskeið hjá Þorsteini Joð ásamt félaga sínum Þór Bæring (viðmælanda í þætti 5). Jón starfaði meðal annars á Útrás, Sólinni, Fm 957, Xinu og Mono. Jón starfaði hjá Skífunni við markaðsmál í 9 ár meðal annars við að markaðssetja bíómyndir og tónlist.
-
78. Ragnhildur Àgústsdóttir
26/02/2020 Duración: 51minÍ þessu þætti spjallar Óli Jóns við Ragnhildi Ágústsdóttir sem er með þann skemmtilega titil Sölustjóri samstarfsaðila og SMB fyrirtækja hjá Microsoft á Íslandi. Ragnhildur hefur hjá Microsoft í að verða 4 ár og hefur líkað mjög vel. Hún vinnur mest með samstarfsaðilum Microsoft á Íslandi, sem eru rétt ríflega 100 talsins ef allt er talið með. Starfið gengur í raun út á að ráðleggja samstarfsaðilunum í sölu á Microsoft lausnum, hvaða virði felst í lausnunum fyrir viðskiptavini og reyni eftir fremsta megni að aðstoða samstarfsaðilarnir í því að koma þessu virði á framfæri til viðskiptavina með skýrum og kraftmiklum hætti. Ragnhildur er stofnandi að Icelandic Lava Show ásamt manninum sínum. Hann er framkvæmdastjóri og sér um allan daglegan rekstur og hún er stjórnarformaður og er einnig að “vasast í ýmsum málum þessu tengdu á kvöldin og um helgar þegar tími gefst”. Ragnhildur segir okkur frá tilkomu þess að hún stofnaði á sínum tíma (2013) BLÁAN APRIL - styrktarfélag barna með einhverfu og var formaður
-
77. Birkir Fannar Einarsson
19/02/2020 Duración: 31minÁ dögunum fékk ég í heimsókn til mín Birkir Fannar Einarsson. Vestmanneyingurinn Birkir sem er nú ekki þekktur fyrir að liggja á skoðunum sínum og klikkar heldur ekki á því í þessu viðtali. Hann er markaðsstjóri Godo í dag, Godo er fyrirtæki sem er með alhliða þjónustu fyrir gististaði. Birkir rak auglýsingastofuna Verðandi í nokkur ár ásamt Steinþóri félaga sínum. Hann hefur sterkar skoðanir á starfsemi birtingahúsa og auglýsingastofa á Íslandi í dag, Birkir segir meðal annars; "Ímark og fleiri mættu hugleiða að verðlauna frekar þá sem eru að hámarka fjárfestingu, frekar en þá sem eyða mest". Hressandi viðtal við
-
76. Björgvin Pétur Sigurjónsson
12/02/2020 Duración: 43minBjörgvin segir okkur í mjög opinskáu viðtali um hvernig það var að alast upp í körfuboltabænum Njarðvík án þess að hafa "íþróttagenin" í sér. Hann hefur alltaf verið hrifinn af sköpun, tók aðeins í gítarinn sem unglingur og er ný byrjaður á því aftur. Eftir að hafa farið í grafíska miðlum opnaðist þessi heimur fyrir Björgvin og línan þannig lögð. Vann um tíma hjá Morgunblaðinu eftir útskrift. Í framhaldi fór hann í margmiðlunarhönnun í Danmörku.
-
75. Renata Sigurbergsdóttir Blöndal
05/02/2020 Duración: 48minÍ þetta skiptið fékk ég til mín Renötu Sigurbergsdóttur hún starfar í dag hjá Krónunni og er yfir viðskiptaþróunn þar. Renata hefur einnig starfað hjá Landsbankanum, Meniga og CCP og segir hún okkur störfum sínum þar og ólíkri menningu þessara fyrirtækja.
-
74. Ólafur Örn Nielsen
20/01/2020 Duración: 41minÓlafur Örn kom í heimsókn til mín í nóvember síðastliðnum. Ólafur sagði okkur frá dögum sínum hjá Árvakri og Eddu útgáfu. Tíminn hjá WOW var líka ræddur þar sem Ólafur leiddi stafræna hlutann á upphafsárum WOW. Hann segir okkur líka frá því þegar hann og Steinar Ingi sem kom til mín í þátt 56 stofnuðu Form 5 sem síðar varð Kolibri.
-
73. Ellen Ragnars Sverrisdóttir
06/01/2020 Duración: 45minÍ fyrsta þætti ársins 2020 er viðtal sem ég tók við Ellen Ragnars Sverrisdóttur í nóvember 2019. Ellen segir okkur frá frumkvöðlaheiminum, frá sumarstörfum sínum í London á menntaskólaárunum, og fyrirtækinu hennar Ragnars.
-
72. Kristín Hrefna Halldórsdóttir FLOW
05/12/2019 Duración: 38minÍ þessum þætti spjalla ég við Kristínu Halldórsdóttur framkvæmdastjóra viðskiptaþróunar hjá FLOW. Kristín Hrefna er með MBA frá Háskóla Íslands og var í viðskiptaþróunarteymi Meniga í 5 ár en síðast var hún sérfræðingur í gagnagreiningu hjá Valitor. Á árunum 2007-2010 var Kristín Hrefna framkvæmdastjóri borgarstjórnarflokks Sjálfstæðisflokksins.
-
71. B) Sigurður Úlfarsson Múlalundi taka 2
26/11/2019 Duración: 46minÞátturinn virðist ekki skila sér í fullri lengd á alla spilara svo við setjum hann inn aftur.
-
71. Sigurður Úlfarsson Múlalundi
20/11/2019 Duración: 46minStór skemmtilegt spjall við Sigurð Úlfarsson framkvæmdastjóra Múlalundar. Sigurður segir okkur frá sjálfum sér hvar hann hefur verið að vinna og sinni mentun. Einnig segir hann okkur frá sögu Múlalundar vinnustofu SÍBS, og þeim áskorunum sem hann rekst á í sinni vinnu.
-
70 .Bala Kamallakharana
13/11/2019 Duración: 34minÞað þarf líklega ekki að kynna neinn sem hefur verið í íslenska startupheiminum undan farin ár fyrir Bala en hann hefur mikið látið að sé kveða þar. Meðal annars stofnaði hann Startup Iceland sem er árlega ráðstefna tileinkuð frumkvöðlum og frumkvöðla starfsemi. Í þessu viðtali sem er á ensku segir Bala okkur frá Startup Iceland, af hverju hann er á Íslandi, ógnir og tækifæri í íslendkum frumkvöðla heimi ásamt mörgu öðru.
-
69. Inga Rós Antoníusdóttir
30/10/2019 Duración: 28minNýr þáttur á jons.is Inga Rós Antoníusdóttir verkefnastjóri stafrænnar ferðaþjónustu hjá Ferðamálastofu er gestur minn í þessum þætti. Við förum yfir víðan völl í markaðsmálum fyrir ferðaþjónustu á Íslandi.
-
68. Bergur og Andri Virkja
23/10/2019 Duración: 24minBergur og Andri hjá Virkja er gestir mínir í þessum þætti. Þeir segja okkur frá þeirra fyrirtæki, þeirra hugsjónum ásamt því hvað þeir hafa verið að gera undanfarin ár. Um Virkja segir á virkja.is "Sprottið af ástríðuVirkja var stofnað af Laufeyju Haraldsdóttur í byrjun árs 2018. Laufey lærði markþjálfun hjá Evolvia og þekkir það af eigin reynslu hvað markþjálfun getur gert fyrir fólk sem vill ná lengra á sinn eigin mælikvarða. Laufey er frumkvöðull og hefur komið víða við í atvinnulífinu. Ástríða hennar fyrir markþjálfun hefur spilað stóran þátt í lífi hennar og í dag er hún starfandi ACC markþjálfi. Hún vinnur með einstaklingum, hópum og fyrirtækjum ásamt því að halda uppbyggjandi námskeið og fyrirlestra. Hún er einnig í frábæru kennara teymi Profectus og kennir þar gunnnám markþjálfunar." Námskeið sem eru komin á dagskrá hjá Virkja er meðal annars byrjenda námskeið í Wordpress "WordPress námskeið fyrir byrjendurVefsíða frá grunniÞetta námskeið er fyrir þá sem vilja komast hratt af stað í vefsíðugerð
-
67. Rúna Magnúsdóttir
16/10/2019 Duración: 31minRúna Magnúsdóttir, alþjóðlegur fyrirlesari og leiðtogaþjálfi, stofnandi og framkvæmdastjóri The Change Makers,með-stofnandi #NoMoreBoxes Viðhorfsvakningarinnar, höfundur bókanna; Branding Your X-Factor og The Story of Boxes, The Good, The Bad and The Ugly, hefur frá árinu 2007 starfað á bæði innlandsmarkaði sem og alþjóðamarkaði við leiðtogaþjálfun, ráðgjöf og markþjálfun með það m.a. að leiðarljósi; Að hjálpa fólki að verða sú breyting sem það vill sjá í heiminum sínum í dag.