Sinopsis
Podcast by Óli Jóns
Episodios
-
66. Steinar Þór Ólafsson Skeljungi
02/10/2019 Duración: 26minSteinar Þór Ólafsson markaðsstjóri Skeljungs er meðal annars menntaður íþróttakennari og rak Crossfitstöð í Lúxemburg. Í þessu í viðtali segir hann okkur frá þeim áskorunum sem liggja fyrir hjá markaðsstjóra í fyrirtæki einsog Skeljung, sem reka sínar bensínstöðvar undir merkjum Orkunnar. Steinar hefur líka verið mjög duglegur að nýta sér Linkedin, hans mat er að Linkedin sé einn vanmetnasti samfélagsmiðilinn. Hann segist vera óhræddur við að setja inn þar það sem honum finnst og að segja sýnar skoðanir. Mark Ritson barst líka í til en Steinar kláraði nýverið Mini MBA námskeið hjá honum sem hann mælir sérstaklega með. Á Linkedin hjá Steinari segir um hann og Skeljung: Ábyrgð á öllu markaðsstarfi Skeljungs á einstaklings- og fyrirtækjamarkaði á Íslandi sem og hluta af alþjóðlegri sölu félagsins til skipa í N-Atlantshafi. Skeljungur starfrækir 65 bensínstöðvar á Íslandi undir vörumerkinu Orkan. Á fyrirtækjamarkaði selur og dreifir Skeljungur skipaolíu, eldsneyti, efnavöru og áburði til fyrirtækja og einstaklin
-
65. Geirlaug Jóhannsdóttir Hagvangi
19/09/2019 Duración: 29minUm Geirlaugu segir í umfjöllun Viðskiptablaðsins vegna eigendaskipta hjá Hagvangi;"Geirlaug hefur lokið MBA námi frá Háskólanum í Reykjavík með áherslu á mannauðsstjórnun og BS gráðu í rekstrarfræðum frá Háskólanum á Bifröst. Hún starfaði áður við Háskólann á Bifröst sem aðjúnkt á viðskiptasviði Háskólans á Bifröst og kenndi þar m.a. mannauðsstjórnun. Hún var um árabil forstöðumaður símenntunar Háskólans á Bifröst og síðar verkefnastjóri tilraunaverkefnis um hækkað menntunarstig í Norðvesturkjördæmi. Áður starfaði Geirlaug sem fræðslustjóri hjá álverinu í Straumsvík. Geirlaug hefur reynslu af sveitarstjórnarstörfum og setið í ýmsum stjórnum, ráðum og nefndum. Geirlaug gekk til liðs við Hagvang árið 2015 og hefur unnið mikið fyrir sveitarfélög og setið í valnefndum vegna ráðninga stjórnenda og sérfræðinga hjá opinberum stofnunum og fjölmörgum fyrirtækjum. Á hagvangur.is segir um fyrirtækið;"Hagvangur er ráðninga- og ráðgjafafyrirtæki sem býður þjónustu við flest það er snýr að mannauðsmálum. Hjá Hagvangi s
-
64. VigdísJóhannsdóttir Pipar/TBWA
05/09/2019 Duración: 24minVigdís er gestur Óla Jóns í þessum þætti. Umræðuefnið er sú þjónusta sem Pipar/TBWA býður uppá ásamt því hvað Vigdís finnst hafa breyst í markaðsmálum á hennar ferli sem spannar nú um tuttugu ár. Við ræðum einnig Krossmiðlum sem er ráðstefna sem haldin er núna 13. september 2019. Á þá ráðstefnu mæta meðal annara John Hunt og Mark Schafer, Bylgja Pálsdóttir, Stella Samúlesdóttir og Ólafur Steinarsson.
-
63. Arnar Gísli Hinriksson Digido
28/08/2019 Duración: 43minArnar starfar hjá Digido, á vef Digido segir um fyrirtækið; DigiDo er netmarkaðsstofa sem hjálpar fyrirtækjum að ná betri árangri í netmarkaðsmálum með auknum sýnileika á leitarvélum, skilvirkari vefauglýsingum, bestunaraðgerðum á vefsíðu, nýtingu gagna í markaðsaðgerðum og vefmælingum. Okkar áhersla er árangursmarkaðssetning (e. Performance Marketing) þar sem gögn og mælingar eru notuð til árangurs í markaðsstarfi. Arnar sem starfaði hjá CCP og WOW segir okkur frá Growth Hacking er og hvernig það var nýtt hjá CCP og átti að gera hjá WOW. Við ræðum líka Google Ads, samfélagsmiðla, retargeting, vefborða, adblockers,youtube og fleira.
-
62. Valdimar Sigurðsson Háskólanum í Reykjavík
11/07/2019 Duración: 44minViðtal við Dr. Valdimar Sigurðsson Prófessor við viðskiptadeild HR. PhD Dr. Valdimar Sigurðsson er prófessor í markaðsfræði og neytendasálfræði við viðskiptadeild HR. Valdimar lauk doktorsprófi sínu við Cardiff University. Valdimar hefur birt fjölda greina og bókakafla og unnið til rannsóknarstyrkja. Hann hefur unnið með fjölmörgum fyrirtækjum í markaðsmálum bæði á Íslandi sem og erlendis.
-
61. Oddur & Ægir hjá Key Of Marketing
03/07/2019 Duración: 30minÍ þessum þætti komu í spjall hjá Óla Jóns þeir Oddur Jarl Haraldsson og Ægir Hreinn Bjarnason en þeir eiga Key Of Marketing sem sérhæfir sig í að finna bestu leiðirnar fyrir fyrirtæki að markaðssetja sig á samfélagsmiðlum. Á keyofmarketing.is segir; "Hvernig byrjaði þetta? „Þetta byrjaði allt fyrir um ári síðan þegar Oddur Jarl Haraldsson, sem sjálfur stóð í eigin sölurekstri ásamt mér, Ægi Hreini Bjarnasyni og öðrum félögum sínum, byrjaði að sjá um auglýsingar hjá öðru fyrirtæki meðfram eigin rekstri. Vinir Odds og vandamenn, sem sjálfir áttu fyrirtæki, sáu hversu vel gekk hjá Oddi að markaðssetja og réðu Odd til að sjá um markaðssetningu fyrir sig,“ segir Ægir. Eftir það fór markaðsfyrirtækið Key of Marketing á flug og fluttist eftir stutta starfsemi í glæsilega skrifstofuaðstöðu í Ármúlanum. Ægir kom inn sem sölustjóri fyrirtækisins og réðu þeir inn fleiri starfsmenn til þess að verða við vaxandi eftirspurn. Hvað gerum við? Við sjáum um auglýsingar á Facebook, Instagram, Google, Youtube og Email.Við notum
-
60. Friðrik Larsen Brandr
20/06/2019 Duración: 31minFriðrik Larsen hjá Brandr, Larsen Energy Branding og Háskóla Íslands í góðu spjalli um vörumerki. Hvað er vörumerki og hvað er ekki vörumerki, starfsemi Brandr og kennslan hjá HÍ er meðal annars það sem við förum yfir. Friðrik segir okkur líka frá bók sem hann skrifaði og er hægt að nálgast á Amazon Energy Branding: Harnessing Consumer Power.
-
59. Magnús Àrnason - Nova
12/06/2019 Duración: 36minÞað þarf líklega ekki að kynna Nova fyrir neinum á Íslandi í dag, stærsta skemmtistað í heimi. Sama má segja um Magnús Árnason sem er með titilinn CHIEF DIGITAL OFFICER hann þarf ekki að kynna fyrir markaðsfólki á Íslandi. Magnús hefur unnið hjá fyrirtækjum einsog Íslandssíma, Latabæ, OZ og sat í stjórn Cintamani. Einnig stofnaði Magnús og rak auglýsingastofuna Vatíkanið ásamt félaga sínum. Magnús segir okkur frá hvernig Nova stærsti skemmtistaður í heimi vinnur að sýnum markaðssmálum. Mjög gott spjall sem enginn áhugamaður um markaðsmál má láta framhjá sér fara.
-
58. Sesselía Birgisdóttir Advania
05/06/2019 Duración: 41minSesselía Birgisdóttir hjá Advania kom í spjall í þessum þætti. Við ræddum markaðsmálin hjá Advania, verkefnin sem hún var áður en hún kom til Advania ss Red Apple Apartments. Sesselía segir okkur líka frá tilkomu viðburðarins Þú sem vörumerki sem haldin var núna í vor og var fullt hús í bæði skiptin. Á vef stjórnvísi segir um viðburðinn;,,Þú sem vörumerki - leiðir til að auka sýnileika og skara framúr"Faghópur um þjónustu og markaðsstjórnun hélt í morgun vel sóttan fund í HR þar sem á annað hundrað manns mættu. Sesselía Birgisdóttir var fyrri fyrirlesari dagsins. Hún hefur mikla reynslu af sölu- og markaðsmálum, þá sérstaklega er viðkemur stafrænum heimi sem tekur sífelldum breytingum. Hún hefur hvað lengst starfað í Svíþjóð og er nú forstöðumaður markaðsmála og stafrænnar miðlunar hjá Advania.
-
57. Hugrún og Birgitta StudioYellow
29/05/2019 Duración: 32minNú í vor útskrifuðust þær Hugrún Rúnarsdóttir og Birgitta Rún Sveinbjörnsdóttir úr Vefskólanum, Þær kíktu í viðtal til mín og sögðu frá hvað varð til þess að þær völdu að fara í Vefskólann, sögðu okkur frá náminu og síðast en ekki síst frá Studio yellow sem þær stofnuðu.
-
56. Steinar Ingi Kolibri
22/05/2019 Duración: 39minSteinar er hönnunarstjóri Kolibri. Hann hefur komið að fjölmörgum verkefnum í vef- og hugbúnaðarþróun á sínum ferli og hefur snertiflöt á flestum þeim verkefnum sem Kolibri kemur að. Hann leiðir framþróun hönnunaraðferða hjá Kolibri og hefur verið í lykilhlutverki í innleiðingu á þjónustuhönnun og hönnunarhugsun (e. design thinking) innan fyrirtækisins. Steinar er með BA gráðu í grafískri hönnun frá Listaháskóla Íslands og MA (Res) gráðu í týpógrafíu & grafískum samskiptum frá Háskólanum í Reading.
-
55. Pétur Arason & Maríanna Magnúsdóttir frá MANINO
15/05/2019 Duración: 37minÁhugavert spjall við Pétur og Maríönnu hjá Manino Á manino.is segir um fyrirtækið Við hjá MANINO sérhæfum okkur í stjórnendaráðgjöf, kennslu og að halda framúrskarandi ráðstefnur með fókus á nýsköpun! Við erum heppin að hafa sterkt tengslanet víða um heim og aðgengi að sérfræðingu sem vilja deila reynslu sinni Maríanna Magnúsdóttir Umbreytingaþjálfari Maríanna er umbreytingaþjálfari og breytingaafl með ástríðu fyrir því að hjálpa öðrum að ná árangri. Maríanna hefur sérstakan áhuga á því að ná rekstrarlegum árangri með því að setja fókus á að þróa fólk, byggja upp árangursrík teymi og skapa vinnukerfi þar sem mannauður blómstrar. Maríanna er rekstrarverkfræðingur með M.Sc.gráðu frá Háskólanum í Reykjavík. Pétur Arason Eigandi Manino og stofnandi Icelandic Lean Institute Arason er Chief Callenger of StatusQuo@Manino og stofnandi Icelandic Lean Institute. Pétur er MSc rekstrarverkfræðingur og sérhæfir sig í fyrirtækjaráðgjöf og kennslu, ásamt því að þýða fræðibækur. Pétur hefur leitt stefnumótun, stýrt stórum
-
54. Elvar Páll Sigurðsson Pipar\TBWA
04/10/2018 Duración: 26minElvar Páll Sigurðsson er í forsvari fyrir DAN (Digital Arts Network) hjá Pipar\TBWA ásamt því að vera í forsvari fyrir The Engine eftir nýlega sameiningu Pipars/TBWA og The Engine.Elvar hélt skemmtilegan fyrirlestur um gögn og skapandi notkun þeirra ásamt því að sýna á skemmtilegan máta hvernig hann sjálfur bjó til gögn á meðan fyrirlestrinum stóð. Elvar fer líka yfir starfið sitt hjá Pipar, segir okkur muninn á Facebook auglýsingum og Facebook"statusum". Elvar útskýrir A/B testing ásamt því að fara yfir helstu samfélagsmiðla og hvernig er gott að nýta sér þá í markaðssetningu.
-
53. Ragnheiður Þorleifsdóttir - Hugsmiðjan
26/09/2018 Duración: 28minRagnheiður Þorleifsdóttir framkvæmdarstóri hjá Hugsmiðjunni í fyrsta þætti vetrarins. Við fáum að kynnast Ragnheiði sem og Hugsmiðjunni í þessum þætti. Hugsmiðjan býður uppá margskonar þjónustu í starfænum lausnum, ásamt því að reka Vefakademínua: Á hugsmidjan.is/akademian/ segir; "Við viljum kenna þér allt sem við kunnum og gera þig um leið að verðmætari starfskrafti. Þróunin á netinu er gríðarlega hröð og mörg fyrirtæki sitja eftir án þess að nýta tækifærin sem eru til staðar."
-
52. Sigurður Ragnarsson Bifröst
22/06/2018 Duración: 46minSigurður Ragnarsson lektor og forseti viðskiptafræðideildar háskólans á Bifröst kom í spjall í vor. Við ræðum um stjórnun og forystu, markaðsmál, menntun og margt fleira. Sigurður Ragnarsson Lektor og forseti viðskiptafræðideildar háskólans á Bifröst Sigurður segir okkur meðal annars hvað er í boði á Bifröst, um viðskiptafræðina og fjarnámið sem er boði þar. Flestir nemendur á Bifröst taka námið þar með vinnu enda er námskráin hönnuð með það í huga. Sigurður kemur einnig inná mikilvægi menntunar í íslensku atvinnulífi. Í haust er Bifröst að byrja að bjóða upp á BS nám í viðskiptagreind og fer Sigðurður einnig yfir það, mjög spennandi nám. Sigurður vinnur nú að doktors verkefni sínu en í því verkefni rannsakar hann Þjónandi forysta eða Servent leadership. Fyrirtæki einsog Southwest Airlines og Starbucks hafa meðal annars nýtt sér Þjónandi forystu Sigurður hefur heimsótt fyrirtæki í Bandaríkjunum í þeirri vinnu og stefnir hann á að klára þessa vinnu næsta vetur.
-
51 Lella Erludóttir Hey Iceland
03/05/2018 Duración: 37minLella Erludóttir er markaðsstjóri Hey Iceland. Lella segir okkur frá Hey Iceland sem er nýtt vörumerki fyrir Ferðaþjónustu bænda. Á vefsíðu Hey Iceland segir um fyrirtækið Við bjóðum upp á yfir 170 gististaði af ýmsu tagi um land allt, frá litlum og notalegum stöðum upp í stærri gististaði sem henta vel fyrir hópa. Hjá okkur finnur þú bændagistingu, svefnpokagistingu, sumarbústaði, íbúðir og sveitahótel en gististaðir okkar eru staðsettir í fögru og friðsælu umhverfi sveitarinnar. Lella sem hefur alltaf verið hrifin af sögu og sagnalist lærði fyrst sálfræði í háskóla og svo blaða og fréttamennsku. Hún er svo ráðin í sprotafyrirtækið Tripcreator sem textamannseskja og content marketing (efnismarkaðssetning). Þar hélt hún utan um samfélagsmiðlana, ritstýringu á vefnum, bloggið og fleira. Byrjar svo sem sérfræðingur í vef og markaðsmálum hjá Hey Iceland þar á eftir og er nú orðinn markaðsstjóri. Við Lella ræðum um hvaða markaðsleiðir Hey Iceland er að nota, Google Adwords, Content Marketing og samfél
-
50. Alda Karen Hjaltalín #2
11/04/2018 Duración: 55minTímamót hjá hlaðvarpinu á jons.is, þáttur númer 50 kemur nú í loftið. Að því tilefni fékk ég til mín Öldu Karen Hjaltalín sem kom einnig í þátt númer 10. Mikið hefur verið um að vera hjá Öldu síðan sá þáttur kom í loftið, hún er flutt til New York, hún er búin að fylla Eldborgarsal Hörpu, koma að stofnun frumkvöðla fyrirtækja í New York, svo fátt eitt sé nefnt. Er Alda Karen að verða bóndi? Hvað er hægt að komast af með mikið marketing budget til að fylla Eldborg? Hvað er mindgym? Hvernig kynnist maður nýju fólk í stórri borg? Hvað er Life masterclass? Hvernig er að stofna fyrirtæki í USA? Alda svarar þessum spurningum ásamt miklu fleiri í þessu spjalli okkar.
-
49. Fjalar Sigurðarson Nýsköpunarmiðstöð Íslands
22/03/2018 Duración: 45minFjalar Sigurðarson markaðsstjóri Nýsköpunarmiðstöð Íslands er gestur Óla Jóns í þætti númer 49 á jons.is Fjalar hefur starfað í fjölmörg ár að markaðssmálum og í fjölmiðlum. Hann starfaði meðal annars á auglýsingastofunni Nonna og Manna og var einnig með sjálstæðan rekstur sem ráðgjafi í tíu ár. Undan farinn tvö ár hefur Fjalar starfað hjá Nýsköpunarmiðstöð Íslands. Nýsköpunarmiðstöðin heldur úti fjölbreyttri starfsemi sem skiptist í megin þáttum í tvö svið Tæknirannsóknir og ráðgjöf annarsvegar og stuðningur við frumkvöðla og fyrirtæki hinsvegar. "Öflug stuðningsþjónusta og þekkingarmiðlun fyrir frumkvöðla og sprotafyrirtæki" Við Fjalar ræðum hvað er í boði hjá Nýsköpunarmiðstöðinni, til dæmis frumkvöðlasetur, námskeið sem í boði eru og vefsíðuna nmi.is sem hefur að geyma mikið af upplýsingum sem nýtast aðilum í fyrirtækjarekstri. Stafrænt forskot er verkefni sem Nýsköpunarmiðstöðin er nýbúin að koma á legg með aðstoð og að skoskri fyrirmyndi. forskot.nmi.is "Stafrænt forskot er safn af vefritum sem Nýs
-
48. Andri Már Kristinsson Hugsmiðjunni
15/03/2018 Duración: 52minÍ þessum þætti spjallar Óli Jóns við Andra Má Kristinsson hjá Hugsmiðjunni. Andri segir okkur frá sinni starfsreynslu, frá námi í HR til Google í Dublin og nú sem ráðgjafi hjá Hugsmiðjunni. Andri segir okkur líka hvernig er að búa í Dublin, frá akademíu Hugsmiðjunnar sem Andri er leiðbeinandi við ofl. Á vef Hugsmiðjunnar segir um fyrirtækið; Við hlustum á þig, á viðskiptavini þína og lærum að þekkja þá. Við nærumst á metnaðarfullum áskorunum, höfum skoðanir og leysum úr einföldum sem krefjandi viðfangsefnum. Og um Andra segir þar; Andri starfar sem ráðgjafi hjá Hugsmiðjunni og margra ára reynslu í vefmælingum. Á árunum 2010 og 2011 starfaði Andri hjá Google sem sérfræðingur og aðstoðaði marga af stærstu auglýsendum Noregs við notkun á Google Analytics. Síðan þá hefur hann hjálpað mörgum fyrirtækjum hér á landi við vefmælingar.
-
47. Edda Blumenstein Ráðgjafi í Omni Channel stefnumótun
28/02/2018 Duración: 34minEdda er ráðgjafi í Omni Channel, þar með talið greiningum, stefnumótun og áætlanagerð til að aðstoða fyrirtæki við innleiðingu. Með innleiðingu á Omni Channel geta fyrirtæki gripið tækifæri stafrænu byltingarinnar (4 iðnbyltingarinnar) til að mæta væntingum nútíma viðskiptavina betur, bæta samkeppnishæfni og hámarka árangur. Edda er með áralanga reynslu af sölu og markaðssetningu, markaðsgreiningum, markaðsáætlanagerð, stjórnun, og stefnumótun. Edda hefur einnig stofnað og rekið heimasíður og netverslanir fyrir alþjóðleg vörumerki og haldið fjölda námskeiða tengda markaðsmálum og Omni channel. Edda er með B.Sc gráðu í International Marketing, Mastersgráðu í Fashion, Enterprise and Society frá Leeds University og er í dag að vinna að doktors rannsókn í innleiðingu fyrirtækja á Omni Channel Strategy við Leeds University Business School. Sjá nánar á LinkedIn, Facebook og strategia.is Netfang: edda@strategia.is Símanúmer: 823-4564 eða +44 7448741086